Ný heimasíða Nemendafélags Háskólans á Bifröst
Stjórn nemendafélagsins kynnir stolt nýja heimasíðu nemendafélagsins. Hvetjum við alla nemendur til þess að skoða nýju síðuna og skrá sig inn. Það er gert með því að smella á „Óska eftir aðgangi“ og munu nemendur þá geta nýtt sér spjallið, sett inn auglýsingar um kaup/sölu á skólabókum og fleira. Einnig mun nemendafélagið nota skráningarlistann af heimasíðunni þegar prentuð verða ný nemendaskírteini næsta haust. Þannig að aðeins þeir sem hafa óskað eftir aðgangi á heimasíðunni munu fá nemendaskírteini.





