Nemendafélag Háskólans á Bifröst
Starfrækt hefur verið nemendafélag við Háskólann á Bifröst allt frá árinu 1955 og bar upphaflega heitið Skólafélagið. Frá byrjun hefur helsta hlutverk félagsins verið að standa fyrir uppákomum og skemmtunum nemenda. Á nýliðnum árum hefur tilgangi og starfsemi félagsins verið hagrætt mikið og árið 2007 var nafni þess breytt í Nemendafélag Háskólans á Bifröst.
Í dag er nemendafélagið fyrst og fremst hagsmunafélag allra nemenda við Háskólann á Bifröst og regnhlífarsamtök félagsstarfseminnar. Metnaður félagsins er að vera sameiningartákn nemenda og stuðla að öflugu félags- og menningarlífi.
Félagslífið á Bifröst er mjög mikilvægur þáttur í skólalífinu og er nemendafélagið í lykilhlutverki við að efla tengsl meðal nemenda . Eftir að nemendur hafa lokið námi og eru komnir út í atvinnulífið geta góð tengsl frá skólaárunum haldist áfram og skapað tækifæri en gott tengslanet er það sem margir af útskrifaðir nemendur nefna sem einn helsta kost þess að læra á Bifröst.
Nemendafélagið stendur meðal annars fyrir ýmis konar menningarviðburðum, vísindaferðum, dansskemmtunum, íþróttakeppnum, hátíðarkvöldverðum og „ Bifróvisjón”, hinni árlegu árshátíð Bifrestinga.
Allir sem hefja nám við Háskólann á Bifröst verða sjálfkrafa meðlimir Nemendafélagsins. Rekstrarfé þess er einungis í formi styrkja, bæði frá skólanum og frá fyrirtækjum, og eru því engin sérstök félagsgjöld. Stjórn félagsins skipar einnig stjórn félagsmálasjóðs sem úthlutað er úr tvisvar á ári. Öllum nemendum er velkomið að stofna félag og sækja um aðild að sjóðnum, í þeim tilgangi að sameina nemendur í félagslegum gjörðum.
Nemendur eiga sæti í helstu stjórnarráðum skólans. Þar er vettvangur til að koma sjónarmiðum nemenda á framfæri og standa vörð um hagsmuni þeirra. Helst ber þar að nefna Háskólaráð sem er næst æðsta ráð skólans að háskólastjórn undanskilinni og á formaður Nemendafélagsins þar sæti.
Félagið heldur úti öflugri heimasíðu www.skolafelag.is þar sem finna má ítarlegri upplýsingar um uppbyggingu og starfsemi félagsins. Auk þess að vera upplýsingavefur um allar uppákomur, er hann hýsill fyrir myndabanka af helstu viðburðum en einnig er hægt að sjá myndir á „facebook“ síðu nemendafélagsins undir nafninu Nemendafélag Háskólans á Bifröst. Þar eru viðburðir einnig auglýstir og ýmsar upplýsingar að finna þar um félagið.
Við sem störfum í núverandi stjórn stefnum að því að efla samheldni nemenda með því að stuðla að fjölbreyttu og skemmtilegu félagslífi. Stefna okkar er að viðhalda þeim viðburðum sem einkennt hafa félagslífið síðustu ár ásamt því að kynna nýja viðburði til sögunnar.
Okkar markmið er að stuðla að því að skólaárin á Háskólanum á Bifröst verði eftirminnileg og jákvæð fyrir hvern nemanda. Þegar horft verður til baka getur vonandi hver og einn rifjað upp þá góðu og skemmtilegu tíma þar sem nemendur urðu Bifrestingar í besta háskóla landsins.
Með kveðju,
Nemendafélagið
Póstfang Nemendafélagsins: nemendafelag@bifrost.is




